Fréttir
Fræðslufundur mánu-daginn 31. okt kl. 19(7)
Fræðslu-fundur Átaks ,,Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks? Verður haldinn Kl:19(7) til 21.00(9) mánu-daginn 31. október að Háa-leitis-braut 13, 4. Hæð. Sendiherra-hópur samnings S.Þ. um réttindi fatlaðs fólks munu kynna samninginn. Sýnd verður stutt-mynd og síðan umræður. Ágústa Björnsdóttir meistaranemi í Háskóla Íslands og verkefnisstjóri diploma-náms fyrir fólk með þroska-hömlun í Hí kemur og kynnir niðurstöður rann-sóknar sem hún vann sumarið 2011 með styrk frá Rannís nýsköpunar-sjóði names-manna. Rann-sóknin fjallar um hugmyndir kvenna með þroska-hömlun um hvað það sé að vera kona og sam-skipti kynjanna. Í erindinu ætlar Ágústa að fjalla sérstaklega um kyn-ferðislegt ofbeldi en niðurstöður rannsóknarinnar benda til að konur með þroska-hömlun verði oft fyrir kyn-ferðislegu ofbeldi án þess að fá úrlausn sinna mála. Við ljúkum fundinum með pizzu, gosi og kaffi. Með góðum kveðjum Aileen Soffía Svensdóttir formaður
