Stoltgangan 3. september - Við göngum á ólíkan hátt – en öll í sömu átt.
- Dags.: 31.08.2016
Stoltgangan fer fram í fyrsta sinn laugardaginn 3. september.
Við leggjum af stað kl. 11:30 frá Austurvelli og göngum að Norræna Húsinu á Fund fólksins.
Við viljum sjá sem allra flesta ganga með okkur til að fagna fjölbreytileikanum.
Endilega deilið og hvetjið alla til að mæta; Sýnum samstöðu og okkur sjálf, rúllum og göngum saman og látum raddir okkar heyrast!